Átaksblogg Ladyxxl
Dagsetning
29. janúar 2012
Ýmislegt
Hetjurnar
24.09.2006 16:42:48 / tonyo

FARIN

Jæja ég er búin að færa min á aðra síðu, slóðin þangað er www.123.is/harpab

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.09.2006 17:38:43 / tonyo

Laugardagur til leti hmm er það ekki annars :D

Jæja ætla bara að hafa þetta stutt í dag. Einhver leti í gangi hér á heimilinu, bara legið upp í sófa og horft á tv og spjallað. Það eru margir að spá í hvað við erum með mörg börn hérna á heimilinu svo ég ætla bara að útlista það hér og nú hehe. Ég á 3 börn og hann á 5 börn en hjá okkur búa, ein 5 ára skvísa hún verður 6 ára núna í október (sem ég á). tveir 10 ára guttar (hann á einn og ég einn), einn 12 ára gutti (sem ég á og er í DDV með okkur), einn 13 ára gutti (sem hann á) og svo ein 19 ára gella (sem hann á) og hún eignaðist lítinn strák í ágúst og þau búa bæði hjá okkur. Svo aðra hverja helgi kemur til okkar lítil 2 ára skvísa sem hann á. Elsti sonur hans sem er 17 ára býr í RVK hjá mömmu sinni en kíkir hingað til okkar af og til. Í dag var skundað í Húsasmiðjuna til að kaupa aðra þvottavél og þurrkara, okkur veitir ekkert af á svona stóru heimili að hafa tvennt af hvoru. Ótrúlegt hvað þvotturinn safnast upp á svona heimili og mér er alveg sama hvað hver segir strákarnir eru EKKERT skárri en stelpurnar varðandi fataskipti þegar þeir eru komnir á unglingagelgjuna hehe. Við höfum oft hugsað okkur að flytja til Reykjavíkur en við sjáum ekki frammá að hafa efni á að kaupa þar af því við þurfum svo svakalega stórt húsnæði :S Dálítið fúlt þar sem fjölskyldur okkar beggja eru í RVK og nágreni. Höfum svosem hugsað um að flytja í Borgarnes eða á Akranes en maður þekkir bara engann þar þannig að það hefur dálítið stoppað okkur. En annars er bara æðislegt að búa hér á Ísafirði, ég ætti kanski bara að flytja restina af fjölskylduni minni hingað hehe úff held að þeim litist sko EKKERT á það. En jæja þetta er orðið lengra en ég ætlaði, tengdapabbi kominn í kaffi svo ég ætla að fara framm og heilsa. Hafiði það rooosalega gott yfir helgina. Síja

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.09.2006 10:02:47 / tonyo

Frost og kuldi.

Úff hvað það er kalt í dag, það hefur greinilega verið frostí nótt, alli bílar hvítir af frosti og nístingskuldi þegar maður opnar glugga brrrrr8| Jæja dagur 3 í danska búinn og dagur 4 tekinn við. Okkur gengur öllum bara ljómandi vel og fyllum út matardagbók með góðri samvisku. Fósturdóttir minni líst ljómandi vel á þetta og finst svo gott hvað það er mikil fjölbreytni í matnum. Ég er að fara með köttinn okkar sem við fengum nýlega til dýralæknis eftir smá stund. Yngri sonur minn kom með hann heim fyrir rúmri viku og við gátum ekki staðist það þegar öll börnin horfðu á okkur með engla augum og sakleisisbrosi og spurðu "Megum við eiga hann, plllíííííísss. Ohh maður getur aldrei sagt nei við þannig aðstæður. En þetta er svo ekkert mál, þessi köttur er svo blíður og kelinn. Hann skríður í fangið á manni og kúrir sig og vill láta klappa sér og strjúka. Þegar við vorum búin að vera með hann í 2 daga þá tókum við eftir ljótum sárum sitthvoru megin ofan við rófuna á honum, það er engu líkara en það hafi farið skot bara beint í gegnum hana :S og svo er farið að grafa í þessu ojjjj :S Ég vona að dýralæknirinn geti gert eitthvað fyrir greyið.Dóttir mín er farin að æfa ballett og finst það æææðislegt, reyndar bara búin að fara í einn tíma en vonandi helst áhuginn bara í allann vetur. Það átti að vera tími í gær en kennarinn var veikur og þá stökk sú stutta upp í rúm og bara grét :( Fanst þetta bara ömurlegt. Vona að kennarinn verði ekki veikur í næstu viku, þessir ballett tímar eru bara einusinni í viku. Ég er núna að hugsa um að færa bloggið mitt á annan stað, er að stilla allt á þeirri síðu og gera klárt og gef svo upp hér hvað nýja slóðin verður. Vonandi eigið þið góðan dag. Skjáumst síðar. Síja

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.09.2006 20:49:12 / tonyo

Dagur 2

Jæja þá er dagur 2 í danska búinn og ég stend á blístri. Við prófuðum að elda kjúklingabringur með sveppavínberjasósu sem er í uppskriftabók 1 (þessari íslensku) og þetta var bara æðsilega gott, mæli alveg með þessum rétti. Ég held að ástæðan fyrir að maður varð latur og tók pásu frá danska í sumar hafi verið að miklu leiti til of lítil fjölbreytni í matnum. Maður var alltaf að elda það sama viku eftir viku. Við erum búin að ákveða að nota uppskriftabækurnar meira og elda alltaf eitthvað nýtt allavega 2 í viku. Eldri sonur minn (12ára) ætlar að vera með okkur aftur í danska, hann hætti í sumar en bætti samt voða litlu á sig miða við að hann stækkaði um 8 cm. Hann er svo duglegur og ég er svo stolt af honum hvað hann er staðfastur og ákveðinn í þessum málum. Í dag var hann td í heimilisfræði í skólanum og þar bökuðu þau smákökur með súkkulaði bitum í og hann borðaði ekki eina einustu köku samt. Hann er líka farinn að æfa fótbolta núna 4 sinnum í viku :D Dugnaðarstrákur sem ég á jeijj. Yngri sonur minn hefur orðið fyrir smá stríðni ( 10 ára) í skólanum og hann ætlar að fá að fylgja þessu mataræði líka en hann á aðeins erfiðara með að sætta sig við að mega ekki drekka djús eða fá sér gommu að koktelsósu en það kemur vonandi hjá honum bara. Ég er búin að vera með dúndrandi hausverk í allann dag, bókstaflega eins og hausinn á mér sé að springa en það gerðist lika þegar ég byrjaði í DDV í janúar. Vona bara að þetta gangi fljótt yfir eins og þá. En annars erum við bara öll full af bjartsýni og tilhlökkun að sjá kílóin fara að fjúka. Þar til á morgun. Síja

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.09.2006 10:48:44 / tonyo

Dagur 1, taka 2 í DDV

Jæja mín er komin aftur og kallinn og sonurinn og núna fósturdóttirin líka. Hún eignaðist barn núna 10 ágúst og þarf að losa sig við nokkur kíló eftir meðgönguna svo hún ákvað að slástí hópinn. Já þannig að ég er orðin "amma" og er bara 32 ára hehe en þetta er bara gaman. Skil núna hvað ömmur eiga við þegar þær segja að það sé svo gott að geta skilað þeim hehe. Jæja þetta fór allt í rugl í sumar, étið yfir sig af nammi og ís og grillmat og fitujukki. Bætti á mig öllu sem ég var búin að ná af mér og pínu meira til. Annars er ég svo bólgin og uppblásin af bjúg þessa dagana að það er kanski ekki alveg að marka viktina. Ég var greind "loksins" með vefjagigt og fór á örorku núna í september og verð á henni næstu 2 árin. Segi "loksins" af því þetta er búið að vera svo langt ferli að finna út hvað væri að mér að þetta er viss léttir að fá loksins niðurstöður. Núna er rútína vetrarins byrjuð aftur og við komin í súper gír að byrja aftur í DDV. Fengum okkur í morgun brauð með camembert og sultu og vá hvað það var gott, var búin að gleyma hvað það var gott að fá sér þannig morgunmat en ekki sykurjukk eða brauð með fitandi áleggi. Er komin með hundleið nánast á öllum mat eftir þetta sukk en það rætist vonandi úr því núna. Í næstu viku ætlum við að byrja að fara í salinn hérna upp á spítala og nota göngubrettin og tækin þar til að styrkja okkur. Ég hefði farið í morgun en hálsinn á mér er nánast fastur útaf bólgum og verkjum útaf vefjagiktinni þannig að ég læt það jafna sig áður en ég fer að hamanst. Jæja komið nóg í dag, ætla að ath hvort það sé komið eitthvað nýtt inn eða eitthvað dottið út af DDV og prenta út matarlista. Skjáumst hress og kát, síja

» 0 hafa sagt sína skoðun


Klukkan