Jæja þá er dagur 2 í danska búinn og ég stend á blístri. Við
prófuðum að elda kjúklingabringur með sveppavínberjasósu sem er í
uppskriftabók 1 (þessari íslensku) og þetta var bara æðsilega gott,
mæli alveg með þessum rétti. Ég held að ástæðan fyrir að maður varð
latur og tók pásu frá danska í sumar hafi verið að miklu leiti til
of lítil fjölbreytni í matnum. Maður var alltaf að elda það sama
viku eftir viku. Við erum búin að ákveða að nota uppskriftabækurnar
meira og elda alltaf eitthvað nýtt allavega 2 í viku. Eldri sonur
minn (12ára) ætlar að vera með okkur aftur í danska, hann hætti í
sumar en bætti samt voða litlu á sig miða við að hann stækkaði um 8
cm. Hann er svo duglegur og ég er svo stolt af honum hvað hann er
staðfastur og ákveðinn í þessum málum. Í dag var hann td í
heimilisfræði í skólanum og þar bökuðu þau smákökur með súkkulaði
bitum í og hann borðaði ekki eina einustu köku samt. Hann er líka
farinn að æfa fótbolta núna 4 sinnum í viku

Dugnaðarstrákur sem
ég á jeijj. Yngri sonur minn hefur orðið fyrir smá stríðni ( 10
ára) í skólanum og hann ætlar að fá að fylgja þessu mataræði líka
en hann á aðeins erfiðara með að sætta sig við að mega ekki drekka
djús eða fá sér gommu að koktelsósu en það kemur vonandi hjá honum
bara. Ég er búin að vera með dúndrandi hausverk í allann dag,
bókstaflega eins og hausinn á mér sé að springa en það gerðist lika
þegar ég byrjaði í DDV í janúar. Vona bara að þetta gangi fljótt
yfir eins og þá. En annars erum við bara öll full af bjartsýni og
tilhlökkun að sjá kílóin fara að fjúka. Þar til á morgun. Síja