Átaksblogg Ladyxxl
FARIN
www.123.is/harpab
Laugardagur til leti hmm er það ekki annars :D
á heimilinu, bara legið upp í sófa og horft á tv og spjallað. Það
eru margir að spá í hvað við erum með mörg börn hérna á heimilinu
svo ég ætla bara að útlista það hér og nú hehe. Ég á 3 börn og hann
á 5 börn en hjá okkur búa, ein 5 ára skvísa hún verður 6 ára núna í
október (sem ég á). tveir 10 ára guttar (hann á einn og ég einn),
einn 12 ára gutti (sem ég á og er í DDV með okkur), einn 13 ára
gutti (sem hann á) og svo ein 19 ára gella (sem hann á) og hún
eignaðist lítinn strák í ágúst og þau búa bæði hjá okkur. Svo aðra
hverja helgi kemur til okkar lítil 2 ára skvísa sem hann á. Elsti
sonur hans sem er 17 ára býr í RVK hjá mömmu sinni en kíkir hingað
til okkar af og til. Í dag var skundað í Húsasmiðjuna til að kaupa
aðra þvottavél og þurrkara, okkur veitir ekkert af á svona stóru
heimili að hafa tvennt af hvoru. Ótrúlegt hvað þvotturinn safnast
upp á svona heimili og mér er alveg sama hvað hver segir strákarnir
eru EKKERT skárri en stelpurnar varðandi fataskipti þegar þeir eru
komnir á unglingagelgjuna hehe. Við höfum oft hugsað okkur að
flytja til Reykjavíkur en við sjáum ekki frammá að hafa efni á að
kaupa þar af því við þurfum svo svakalega stórt húsnæði :S Dálítið
fúlt þar sem fjölskyldur okkar beggja eru í RVK og nágreni. Höfum
svosem hugsað um að flytja í Borgarnes eða á Akranes en maður
þekkir bara engann þar þannig að það hefur dálítið stoppað okkur.
En annars er bara æðislegt að búa hér á Ísafirði, ég ætti kanski
bara að flytja restina af fjölskylduni minni hingað hehe úff held
að þeim litist sko EKKERT á það. En jæja þetta er orðið lengra en
ég ætlaði, tengdapabbi kominn í kaffi svo ég ætla að fara framm og
heilsa. Hafiði það rooosalega gott yfir helgina. Síja
Frost og kuldi.
alli bílar hvítir af frosti og nístingskuldi þegar maður opnar
glugga brrrrr8| Jæja dagur 3 í danska búinn og dagur 4 tekinn við.
Okkur gengur öllum bara ljómandi vel og fyllum út matardagbók með
góðri samvisku. Fósturdóttir minni líst ljómandi vel á þetta og
finst svo gott hvað það er mikil fjölbreytni í matnum. Ég er að
fara með köttinn okkar sem við fengum nýlega til dýralæknis eftir
smá stund. Yngri sonur minn kom með hann heim fyrir rúmri viku og
við gátum ekki staðist það þegar öll börnin horfðu á okkur með
engla augum og sakleisisbrosi og spurðu "Megum við eiga hann,
plllíííííísss. Ohh maður getur aldrei sagt nei við þannig aðstæður.
En þetta er svo ekkert mál, þessi köttur er svo blíður og kelinn.
Hann skríður í fangið á manni og kúrir sig og vill láta klappa sér
og strjúka. Þegar við vorum búin að vera með hann í 2 daga þá tókum
við eftir ljótum sárum sitthvoru megin ofan við rófuna á honum, það
er engu líkara en það hafi farið skot bara beint í gegnum hana :S
og svo er farið að grafa í þessu ojjjj :S Ég vona að dýralæknirinn
geti gert eitthvað fyrir greyið.Dóttir mín er farin að æfa ballett
og finst það æææðislegt, reyndar bara búin að fara í einn tíma en
vonandi helst áhuginn bara í allann vetur. Það átti að vera tími í
gær en kennarinn var veikur og þá stökk sú stutta upp í rúm og bara
grét :( Fanst þetta bara ömurlegt. Vona að kennarinn verði ekki
veikur í næstu viku, þessir ballett tímar eru bara einusinni í
viku. Ég er núna að hugsa um að færa bloggið mitt á annan stað, er
að stilla allt á þeirri síðu og gera klárt og gef svo upp hér hvað
nýja slóðin verður. Vonandi eigið þið góðan dag. Skjáumst síðar.
Síja
Dagur 2
prófuðum að elda kjúklingabringur með sveppavínberjasósu sem er í
uppskriftabók 1 (þessari íslensku) og þetta var bara æðsilega gott,
mæli alveg með þessum rétti. Ég held að ástæðan fyrir að maður varð
latur og tók pásu frá danska í sumar hafi verið að miklu leiti til
of lítil fjölbreytni í matnum. Maður var alltaf að elda það sama
viku eftir viku. Við erum búin að ákveða að nota uppskriftabækurnar
meira og elda alltaf eitthvað nýtt allavega 2 í viku. Eldri sonur
minn (12ára) ætlar að vera með okkur aftur í danska, hann hætti í
sumar en bætti samt voða litlu á sig miða við að hann stækkaði um 8
cm. Hann er svo duglegur og ég er svo stolt af honum hvað hann er
staðfastur og ákveðinn í þessum málum. Í dag var hann td í
heimilisfræði í skólanum og þar bökuðu þau smákökur með súkkulaði
bitum í og hann borðaði ekki eina einustu köku samt. Hann er líka
farinn að æfa fótbolta núna 4 sinnum í viku :D Dugnaðarstrákur sem
ég á jeijj. Yngri sonur minn hefur orðið fyrir smá stríðni ( 10
ára) í skólanum og hann ætlar að fá að fylgja þessu mataræði líka
en hann á aðeins erfiðara með að sætta sig við að mega ekki drekka
djús eða fá sér gommu að koktelsósu en það kemur vonandi hjá honum
bara. Ég er búin að vera með dúndrandi hausverk í allann dag,
bókstaflega eins og hausinn á mér sé að springa en það gerðist lika
þegar ég byrjaði í DDV í janúar. Vona bara að þetta gangi fljótt
yfir eins og þá. En annars erum við bara öll full af bjartsýni og
tilhlökkun að sjá kílóin fara að fjúka. Þar til á morgun. Síja
Dagur 1, taka 2 í DDV
fósturdóttirin líka. Hún eignaðist barn núna 10 ágúst og þarf að
losa sig við nokkur kíló eftir meðgönguna svo hún ákvað að slástí
hópinn. Já þannig að ég er orðin "amma" og er bara 32 ára hehe en
þetta er bara gaman. Skil núna hvað ömmur eiga við þegar þær segja
að það sé svo gott að geta skilað þeim hehe. Jæja þetta fór allt í
rugl í sumar, étið yfir sig af nammi og ís og grillmat og
fitujukki. Bætti á mig öllu sem ég var búin að ná af mér og pínu
meira til. Annars er ég svo bólgin og uppblásin af bjúg þessa
dagana að það er kanski ekki alveg að marka viktina. Ég var greind
"loksins" með vefjagigt og fór á örorku núna í september og verð á
henni næstu 2 árin. Segi "loksins" af því þetta er búið að vera svo
langt ferli að finna út hvað væri að mér að þetta er viss léttir að
fá loksins niðurstöður. Núna er rútína vetrarins byrjuð aftur og
við komin í súper gír að byrja aftur í DDV. Fengum okkur í morgun
brauð með camembert og sultu og vá hvað það var gott, var búin að
gleyma hvað það var gott að fá sér þannig morgunmat en ekki
sykurjukk eða brauð með fitandi áleggi. Er komin með hundleið
nánast á öllum mat eftir þetta sukk en það rætist vonandi úr því
núna. Í næstu viku ætlum við að byrja að fara í salinn hérna upp á
spítala og nota göngubrettin og tækin þar til að styrkja okkur. Ég
hefði farið í morgun en hálsinn á mér er nánast fastur útaf bólgum
og verkjum útaf vefjagiktinni þannig að ég læt það jafna sig áður
en ég fer að hamanst. Jæja komið nóg í dag, ætla að ath hvort það
sé komið eitthvað nýtt inn eða eitthvað dottið út af DDV og prenta
út matarlista. Skjáumst hress og kát, síja